Markaðsleiðir
Að lokinni stefnumótunarvinnu og greiningu á samkeppni, sem nauðsynlegt getur verið að endurnýja reglulega, tekur við markhópagreining. Góð þekking á markhópum fyrirtækisins er grundvallaratriði áður en hægt er að taka ákvarðanir um þær markaðsaðgerðir sem notaðar verða. Fjöldi markaðsaðgerða stendur fyrirtækjum til boða og ræðst valið m.a. af markhópum fyrirtækisins, fjármagni til markaðssetningar og þekkingar og reynslu starfsmanna. M.a. geta fyrirtæki nýtt sér beina markaðssetningu, ýmsar leiðir til markaðssetningar á netinu og hefðbundna miðla á borð við sjónvarp, útvarp og prentmiðla. Engin ein markaðsaðgerð er nægileg og því þarf að finna það samspil nokkurra leiða sem best hentar hverju fyrirtæki. Nauðsynlegt getur verið að leita sér aðstoðar utanaðkomandi fagaðila en þá er einnig mikilvægt að vera upplýstur kaupandi að markaðsþjónustu.